Borð úr Industrie línunni frá Lambert sem er ein af vinsælustu húsgagnalínum þeirra og hefur hið eftirsótta iðnaðarútlit (industrial look). Borðplatan er úr gegnheilli eik sem hefur verið bæsuð svört og svo lökkuð til hlífðar. Platan situr á svartri, dufthúðaðri járngrind sem hefur burstaða ál fætur með iðnaðarhjólum sem hægt er að læsa og er því auðvelt að færa borðið til eftir hentisemi. Hér skapa andstæður nýstárlegt en þó klassískt og tímalaust útlit.
L: 220cm
B: 90cm
H: 74cm